Fréttir
112 dagurinn
Sigursteinn og Steinþór
Afhending verðlaunaskjals í eldvarnagetraun Slökkviliðs-og sjúkraflugningsmanna

12.02.2010 Fréttir

11.2 dagurinn

Einn einn tveir dagurinn 2010


11.2. dagur á Slökkvistöð Hornafjarðar. Á þessum degi verða viðbragðsaðilar um allt land með opið hús hjá sér.  Þemi dagsins verðu aðkoma fólks að vettvangi slysa, veikinda og áfalla.  Viðbragðsaðilar koma sjaldnast fyrstir á vettvang slíkra atburða.  Oft er það almennur borgari sem kemur fyrst á vettvang og veitir fyrstu aðstoð.  Þessi viðbrögð geta skipt sköpum um afdrif slasaðra og hvernig til tekst með björgun.  Lögð er áhersla á að sem flestir kunni skyndihjálp og teysti sér til að veita fyrstu hjálp þegar á reynir.  Margt kemur upp í hugann sem gott er að hafa á hreinu eins og,

·         Er hættulegt að sofna eftir höfuðhögg ?

·         Er hættulegt að fá blóðnasir ?

·         Er geitungabit hættulegt ?

·         Hvar orðsakar bráðaofnæmi ?

·         Mega allir nota hjartastuðtæki ?

Er ekki tími til kominn að rifja þetta aðeins upp og gera sjálfum sér þann greiða að vera klár á grundvallaratriðum er varða skyndihjálp.

Undanfarin ár hafa slökkviliðin staðið fyrir Eldvarnaviku í desember og hefur það verið hluti af okkar forvörnum að fara í grunnskóla og kynnt fyrir nemendum þann búnaði sem til er og má nota ef upp kemur eldur.  Í ár var það reykskynjarinn sem var kynntur og hvernig á að umgangast hann með því að tryggja að rafhlaðan í honum sé í lagi, endurnýja þarf hana einu sinni á ári, og hort skynjarinn sé á réttum stað?  Hægt er að kynna sér þetta á vef okkar sem vistaður er á hornafjordur.is/stjornsysla/eldvarnaeftirlit.

Fríður hópur úr 3 bekk Hafnarskóla mætti á Slökkvistöð Hornafjarðar og fékk Sigursteinn Örn Jónsson verðlaun fyrir þátttöku sína í Eldvarnagetraun Landssambands slökkviliðs-og sjúkraflutningamanna, Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri afhenti honum verðlaunin að viðstöddu skólafélögum Sigursteinns.

Borgþór Freysteinsson

Eldvarnaeftirlit.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica