Fréttir
Guðjón og Þórhallur að vinna í þakinu
Endurvinnslubraggi
Guðjón og Þórhallur að vinna í þakinu. Mynd: HIE

05.02.2010 Fréttir

Breytingar á sorpgjöldum fyrirtækja og lögbýla í sveitarfélaginu Hornafirði.

Breytingar hafa verið gerðar á sorpgjöldum til fyrirtækja og lögbýla. Megin breytingar eru fólgnar gegnsæi í gjaldtöku sem leiða á af sér aukna endurvinnslu úrgangs.  Fyrirtæki greiða þar að leiðandi fyrir magn en eru ekki sett í fyrirfram ákveðna flokka eins og áður var.  Þannig geta fyrirtæki haft bein áhrif á þennan lið í rekstri sínum með því að skila inn endurvinnanlegum úrgangi sem er án gjaldtöku, fyriræki greiða hinsvegar fyrir blandaðan úrgang. 

Gjaldtaka fyrir magn er með tvennskonar hætti og fara fram á þriggja mánaðarfresti.  Fyrirtæki sem eru með gáma greiða fyrir hvert urðað kg en fyrirtæki sem eru með minni ílát svo sem tunnur eða 660 L kör greiða fyrir m³ samkvæmt gjaldskrá.  Þau fyrirtæki sem eru með ílát frá Sveitarfélaginu verður gefinn kostur að kaupa þau á heildsöluverði.  Fyrirtæki greiða einnig fyrir óflokkaðan úrgang sem komið er með í móttökustöð gámaports við Áhaldahús samkvæmt gjaldskrá.   

Haldnir verða kynningarfundir á breyttu fyrirkomulagi næstu daga og tvær vikur.  Hægt verður að hafa samband við Hauk Inga Einarsson framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs í síma 470-8003 / 895-9946 í viku 6 ( 8. feb. – 12. feb. ) kl 8:30 – 9:30.  Í sjöundu viku  ( 15. feb. – 19. feb. ) verður rekstraraðilum fyrirtækja boðið að koma á skrifsstofu ráðhússins á milli kl 9:00 – 10:00 og fá nánari útskýringar á gjaldskránni sé þess óskað.  Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið haukuri@hornafjordur.is sem verður svarað eins fljótt og auðið er.

Hægt er að kynna sér breytta gjaldskrá hér

 

- Haukur Ingi Einarsson
  Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica