Fréttir
Skólagarðar, uppskera

03.02.2010 Fréttir

Hugað að sumarstörfum vinnuskóla

Hugað er að undirbúningi vinnuskólans á Höfn og byrjað er að auglýsa eftir vinnusömum flokkstjórum

 

Hugað er að undirbúningi vinnuskólans hjá Sveitarfélaginu Hornafirði.  Það eru hlýindi í janúarmánuði  sem minna á vorið og komandi átök við að halda sveitarfélaginu eins snyrtilegu og hægt er en talið er að ágætlega hafi tekist til síðasta sumar.  Óskað er eftir umsóknum í eftirfarandi störf vinnuskólans fyrir 22. febrúar n.k. 

1.   Flokksstjórn í  vinnuskóla á Höfn og í Nesjum

Starfið felst í að vinna með unglingum, aðallega í umhirðu grænna svæða sveitarfélagsins.

Umsækjendur þurfa helst að vera 20 ára eða eldri.

Tilvalið tækifæri fyrir þá sem vilja starfa í skemmtilegu umhverfi með skemmtilegum unglingum og öðlast reynslu á sviði stjórnunar. 

2.   Umsjón með skólagörðum

Starfið felst í því að taka á móti nemendum í yngri bekkjum Grunnskóla Hornafjarðar, leiðbeina og aðstoða nemendur við að rækta grænmeti, kartöflur og salöt.  Æskilegt er að umsækjendur séu 18 ára eða eldri.  Tilvalið fyrir þá sem hafa áhuga á að vera úti í náttúrunni og vinna með börnum.

 3.   Vinna við slátt

Umsækjendur þurfa að vera 16 ára eða eldri. Starfið felst í slætti á opnum svæðum, einkagörðum og almennri garðyrkju. Unnið er með m.a. sláttubíl, sláttuvélar og vélorf.
Hentar vel fyrir þá sem vilja vinna úti og í góðum félagsskap.

  

Umsóknareyðublöð

Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu bæjarfélagsins og á http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/upplysingar/Umsoknir/nr/2915

einnig má skila inn rafrænt á netfangið haukuri@hornafjordur.is. Skila ber umsóknum fyrir 22. febrúar nk.   Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs í síma 470 8003

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica