Framlög vegna lægri fasteignaskatta
Félagsmálaráðherra hefur fallist á tillögu ráðgjafanefndar um úthlutun framlaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti. Sveitarfélagið Hornafjörður fær nú í sinn hlut 8.516.317 kr. og kemur sú upphæð til greiðslu í október. Endanlegt framlag til sveitarfélagsins er því 27.064.032 kr. á árinu 2003. Höfuðborgarsvæðið fær minnst í sinn hlut eða rúmar 12,3 milljónir. Suðurland fær aftur á móti hæstu greiðsluna sem er rúmar 290 milljónir. Austurland fær í sinn hlut rúmar 206 milljónir.
Í reglugerð frá árinu 2001 segir m.a. að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skuli greiða sveitarfélögum framlög til að jafna tekjutap þeirra vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti í kjölfar breytingar á álagningarstofni mannvirkja sem gerð var árið 2002.





Skrifa athugasemd