Fjárhagsáætlun 2010 samþykkt á fundi Bæjarstjórnar Hornafjarðar í gær
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar var samþykkt á fundi Bæjarstjórnar Hornafjarðar þann 10. desember. Fram kom í máli bæjarstjóra að enn væri óvissa um þróun efnahagsmála sem gerði áætlanagerð erfiðari. Þó bæru fréttir og aðrar heimildir það með sér að uppgangur hefjist á næsta ári og jafnvel fyrr en seinna. Bæjarstjóri sagði fjárhagsstöðu sveitarfélagsins ágæta sem gerði sveitarfélaginu kleift að halda úti nær óbreyttri þjónustu við íbúa og töluverðum framkvæmdum á næsta ári án þess að tekin verði ný lán í A- hluta sveitarsjóðs.
Framkvæmdir 2010 verða eftirfarandi:
A- Hluti 200,0 m.kr.
- Viðbygging við Lönguhóla og lóð 30,0 m.kr.
- Skólalóð við Grunnskóla Hornafjarðar 7,0 m.kr.
- Endurbætur á Tónskóla Hornafjarðar (Sindrabæ) 20,0 m.kr.
- Gervigrasvöllur 72,0 m.kr.
- Svavar Guðnason – sýningarsalur 3,0 m.kr.
- Endurbætur á Ráðhúsi 2,0 m.kr.
- Leirusvæði 2,5 m.kr.
- Þjónustustöð 4,0 m.kr.
- Opin svæði / malbikun / lýsing í dreifbýli 29,5 m.kr.
- Reiðskemma 25,0 m.kr.
- Óráðstafað 5,0 m.kr.
B- Hluti 92,0 m.kr.
- Varnargarður í Sílavík 7,0 m.kr.
- Hafnarvog – vigt 20,0 m.kr.
- Malbik og umhverfi hafnarinnar 20,0 m.kr.
- Bræðslubryggja, Grynnsli, landbrot 6,5 m.kr.
- Vatnsveituframkvæmdir 8,5 m.kr.
- Fráveituframkvæmdir 30,0 m.kr.
Samtals: 292,0 m.kr.
Helstu niðurstöðutölur A – og B -hluta
Tekjur 1,449,0 m.kr. Laun og launatengd gjöld verða 766,4 m.kr., annar rekstrarkostaður 491,3 m.kr. og afskriftir 67,2 m.kr. Fjármagnskostnaður er 86,9 m.kr. og rekstrarniðurstaða 36,9 m.kr. afgangur. Handbært fé frá rekstri 190,2 m.kr., fjárfestingar 292,0 m.kr., afborganir langtímalána 127,4 m.kr., ný langtímalán 7 m.kr. og handbært fé í árslok 215,0 m.kr.
Samþykktar voru eftirfarandi álagningareglur fyrir árið 2010
Útsvar 13,28%
Fasteignaskattur á íbúðahúsnæði 0,50% af fasteignamati
Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði 1,62% af fasteignamati
Lóðaleiga 1,00% af fasteignamati
Holræsagjöld 0,30% af fasteignamati
Vatnsgjöld 0,18% af fasteignamati
Sorphreinsigjald kr./pr.einingu 10.000.-
Sorpurðunargjald kr./pr.einingu 10.000.-
Sorpurðunargjald ½ kr./pr.einingu 5.000.-
Sorpurðunargjald fyrirtækja 10.000.-
Hunda- og kattaleyfisgjöld í samræmi við reglugerð.
Gjaldskrár leikskóla, tónskóla, mötuneyta og lengdrar viðveru hækka ekki á milli ára.
Bókun meirihluta bæjarstjórnar:
Allt útlit er fyrir að afkoma Sveitarfélagsins Hornafjarðar árið 2009 verði með ágætum og áætlun fyrir árið 2010 sýnir einnig jákvæða rekstrarniðurstöðu. Það hversu vel hefur tekist til með rekstur sveitarfélagsins í þeim hremmingum sem skekið hafa þjóðlífið í kjölfar fjármálahruns og grundvallarbreytinga í rekstri ríkisins má þakka ábyrgri og traustri fjármálastjórn. Bæjarstjórn Hornafjarðar þakkar nefndarmönnum og starfsmönnum fyrir samstarfið um að standa vörð um fjárhag sveitarfélagsins og þar með velferð íbúa í sveitarfélaginu.
Framkvæmdir Sveitarfélagsins Hornafjarðar á næsta ári verða talsvert miklar í samanburði við önnur ár. Stór hluti framkvæmdafjárins fer í uppbyggingu gervigrasvallar á Sindravöllum og reiðhöll Hestamannafélagsins Hornfirðings. Að þessum tveimur framkvæmdum viðbættum má segja að stórkostlegt átak hafi átt sér stað á yfirstandandi kjörtímabili í uppbyggingu mannvirkja og aðstöðu fyrir íþrótta- og æskulýðsstarf. Auk þess verður ráðist í endurbætur á stofnunum sveitarfélagsins, svo sem viðbyggingu og endurbætur á leikskólanum Lönguhólum og áframhaldandi endurbætur á húsnæði Tónskólans í Sindrabæ, annan áfanga í fráveituframkvæmdum, áframhaldandi viðhald félagsheimila í sveitum og lagfæringar á bryggjum.





Skrifa athugasemd