Fréttir
Eldvarnardagurinn 2009
Eldvarnardagurinn 2009
Borgþór og Steinþór í heimsókn hjá Grunnskólanum
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

30.11.2009 Fréttir

Bjössi bangsi stórtækur í eldvarnaviku slökkviliðsins.

 

Í upphafi eldvarnaviku komu krakkar frá leikskólanum Krakkakoti með Bjössa bangsa í heimsókn. Tilgangur heimsóknar hans var að kynna sér hlutverk slökkviliðsins sem er fjölþætt.  Á hverju skólaári er það venjan að slökkviliðið heimsæki krakka í 3. bekk barnaskóla og afhendi þeim eldvarnargetraun sem þau þurfa að leysa með foreldrum sínum. Hlutverk Bjössa var að kynna reykskynjara sem hann var með í rauða fallega bakpokanum sínum. Landsamband slökkviliðs-og sjúkraflutningamanna hefur gefið út myndskreytta bók um slökkviálfana Loga og Glóð og illvirkjanum Brennu-Varg. Slökkviliðsmenn færa átta ára börnum um allt land bókina að gjöf í Eldvarnaátakinu sem stendur yfir þessa stundina hjá okkur.

Bókin fjallar um Brennu-Varginn sem sýnir öðrum enga miskunn og ber ekki virðingu fyrir neinu.  Logi og Glóð koma óvænt fram á sjónarsviðið þegar heimili þeirra eyðist í eldi. Sigfinnur slökkviliðsstjóri tekur þau upp á sína arma og býður þeim að búa í slökkvistöðinni í bænum, þar sem sagan gerist.  Slökkviliðsmenn hvetja foreldra til þess að lesa þessa bók með börnunum sínum og fara yfir slökkvibúnað sem til er á heimilinu og jafnvel bæta við ef þörf krefur.  Í byrjun næstu viku munu slökkviliðsmenn skila Bjössa til krakkanna í Krakkakoti og fara yfir þau verkefni sem í gangi eru og þakka þeim og starfsfólki leiksólanna fyrir einstakt framlag þeirra til bættra eldvarna á sínum vinnustað.

 

Borgþór Freysteinsson

Eldvarnaeftirlit.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica