Aðventan gengur í garð – jólaljósin tendruð
Fyrsti sunnudagur í aðventu er nk.sunnudag, þann dag verða ljósin tendruð á jólatré Hornafjarðar við hátíðlega athöfn kl. 17.00. Þar verða leikinn og sunginn jólalög, ávarp og hugvekja í anda jólanna. Þeir sem koma fram eru m.a. blásarasveit, kvennakórinn, leikskólabörnin og hornfirsk stúlka mun síðan tendra jólaljósin og koma öllum í jólaskap. Von er á köllum af fjöllum með rauðar skotthúfur og auðvita vita flestir hverjir þar eru á ferð, þetta eru kúnstugir kallar sem bregða á leik og syngja hástöfum. Ef veðurspáin gengur eftir er gott að fara í hlýju fötin og setja á sig lopavettlingana. Að þessu sinni verður jólatréið staðsett við sundlaugina og verður gaman að sjá hvernig það tekur sig út þar. Fólk er hvatt til að fjölmenna við athöfnina og væri gaman að sem flestir kæmi á tveimur jafnfljótum en ef fólk kemur akandi að leggja ekki á bílastæði sundlaugarinnar.




Skrifa athugasemd