Margir valkostir fyrir þá sem vilja stunda íþróttir á Höfn
Mikil gróska er í íþróttastararfsemi hjá Íþróttamiðstöð Hornafjarðar eins og undanfarin ár og hafa valkostirnir aldrei verið fleiri. Undir Íþróttamiðstöðina heyra, Íþróttahúsið Höfn, íþróttahúsið og félagsheimilið í Mánagarði, sparkvöllurinn, Sindravellir, Mánavöllur og Sundlaug Hafnar. Starfsemi á þessum stöðum er frá morgni til kvölds bæði hjá skólum og íþróttafélögum. Notkun vallanna er þó mest á sumrin. Aðalbreytingin í starfsemi íþróttahúsanna er að nú hafa fimleikarnir hjá Umf. Sindra færst alfarið úr Íþróttahúsinu á Höfn inn í Íþróttahúsið í Mánagarði en hér er um tilraun að ræða fram að áramótum. Nú nýverið hafa verið settar inn upplýsingar um Íþróttamiðstöð Hornafjarðar inn á heimsíðu sveitarfélagsins. Þar er að finna upplýsingar um starfsemina, opnunartíma og símanúmer stofnana ásamt því að æfingatafla Umf. Sindra er þar inni undir opnunartímar.




Skrifa athugasemd