Framkvæmdir
Gervigrasvöllur, trjáhýsi og grjótvörn
Fréttir af framkvæmdum
Gervigrasvöllur undir Garðshól
Hafinn er undirbúningur á uppbyggingu gervigrasvallar undir Garðshól, um er að ræða gervigrasvöll sem verður 68 L x 48 B í samræmi við deiliskipulag á svæðinu. Sveitarfélagið hefur óskað eftir tilboðum í niðurtöku/niðurrif á trésmíðaverkstæði við Víkurbraut, en gert er ráð fyrir að gervigrasið nái yfir trésmíðaverkstæðið. Hægt er að nálgast útboðsgögn á vefslóðinni http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/utbod ef allar áætlanir ganga eftir verður hægt að spyrna knetti á vellinum næsta vor eða sumar.
Trjáhýsi í Hrossabitahaga
Eins og meðfylgjandi myndir sýna þá eru leikskólanemendur leikskólans Lönguhóla byrjuð að nota trjáhýsi í Hrossabitahaga. Trjáhýsið er byggt af Birni starfmanni þjónustustöðvar á Höfn. Íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að nýta trjáhýsið, því þarna er stutt í kyrrð og ró með fjölskyldu og gestum. Gott að setjast niður með nesti og njóta umhverfisins. Við minnum alla á að ganga vel um svæði.
Grjótvörn milli Krosseyjar- og Álaugareyjarbryggju
Hafnarstjórn bíður nú út færslu á grjótvörn milli Krosseyjar- og Álaugareyjarbryggju. Með færslunni er ætlast til að ná fram betra aksturs- og athafnarými milli bryggjanna, en eins og íbúar svæðisins hafa tekið eftir þá hefur Mikael ehf ný lokið við að steypa þekju Álaugareyjarbryggju. Þekjan þykir vel heppnuð og bætir hafnaraðstöðu á Höfn.
Haukur Ingi Einarsson
Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs Hornafjarðar.





Skrifa athugasemd