Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjaðar
Sérstakur starfshópur var skipaður af bæjarstjórn til þess að halda utan um vinnu við endurskoðun aðalskipulags og er hann skipaður Árna Rúnari Þorvaldssyni, Sigurlaugu Gissurardóttur og Halldóru B. Jónsdóttur
Nú er unnið að endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Sérstakur starfshópur var skipaður af bæjarstjórn til þess að halda utan um vinnu við endurskoðun aðalskipulags og er hann skipaður Árna Rúnari Þorvaldssyni, Sigurlaugu Gissurardóttur og Halldóru B. Jónsdóttur. Starfhópurinn fól nefndum sveitarfélagsins að yfirfara aðalskipulagið og gera tillögur að breytingum. Þær hafa nú lokið sini yfirferði og skilað tillögum sínum til starfshópsins. Þar má nefna tillögur um færslu á innsiglingu, göng undir Lónsheiði, færslu þjóðvegar í þéttbýli og nýtt kirkjugarðsstæði svo eitthvað sé nefnt.
Aðalskipulag er mikilvægt gagn fyrir samfélög þar sem stefna sveitarfélaga til margra ára er lögð til grundvallar í tengslum við uppbyggingu íbúðarsvæða, atvinnumála, umhverfismála, félagsmála og fleiri þátta. Því er mikilvægt að íbúar komi sínum sjónarmiðum á framfæri við upphaf vinnunnar við endurskoðunina. Af þeim sökum er nú óskað eftir breytingartillögum íbúa vegna þessarar vinnu. Því er sérstaklega beint til íbúa í dreifbýli að gefa upplýsingar um vatnból sem eru í notkun til að skilgreina veitur og vatnsverndarsvæði þeirra.
Með hópnum starfar Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissvið og veitir hann allar frekari upplýsingar í gegnum tölvupóstfangið haukuri@hornafjordur.is.





Skrifa athugasemd