Fréttir
Hreinsunardagur 30. apríl 2007
Hreinsunardagur 30. apríl 2007
Hreinsunardagur 30. apríl 2007

02.06.2009 Fréttir

Starf vinnuskólans fer á fullt mánudaginn 8. júní

Sumarið er tíminn þegar gróður fer á stjá

Starf vinnuskólans og skólagarða fer á fullt mánudaginn 8. júní þegar unglingarnir mæta til starfa og Bára Ólafsdóttir tekur á móti nemendum skólagarða kl 10:00. Mæting er í Sindrabæ kl 09:00 þar sem farið verðu yfir vinnu sumarsins, skyndihjálp, notkun verkfæra o.fl.  Vinnuskólinn verður að mestu með hefðbundnu sniði, þó verður lögð meiri áhersla á fræðslu samhliða starfi í ár og fluttir 2 – 3  fyrirlestrar sem tengjast starfinu. 

 

Flokkstjórar og sláttu hópur  hafa hafist handa við að gera bæinn sem snyrtilegastan fyrir sumarið. Sláttur hefur gengið vel og fjölmörg beð orðin illgresislaus og skreytt sumarblómum. 

Þess má svo geta að 9 holu púttvöllur við heilsugæsluna á Höfn hefur verið settur upp.  Hann verður sleginn reglulega í sumar og er opinn öllum sem vilja.  Þeir sem vilja komast í snertingu við golfið ættu að nýta sér þessa aðstöðu og kanna golfhæfileika sýna.

Vinnuskólinn fer af stað mánudaginn 8. júní. Þeir nemendur í 8. 9. og 10. bekkjar sem sóttu um vinnu eiga að mæta kl 09:00 í Sindrabæ þann dag.  Þeir nemendur sem ætla að sækja skólagarða eiga að mæta kl 10:00 við skólagarða.

 

Sjáumst hress og kát í sumar

 

Yfir flokkstjórar

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica