Fréttir
Unnið við tölvu

20.05.2009 Fréttir

Atvinna - Launafulltrúi

Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir að ráða launafulltrúa í 80% starf.

Leitað er eftir einstaklingi sem er sjálfstæður í vinnubrögðum, sýnir frumkvæði í starfi og hefur góða almenna tölvukunnáttu.

Unnið er á tölvukerfin H-Laun3 og Navision

Æskileg er þekking á launabókhaldi og/eða fjárhagsbókhaldi.  Mikilvægt er að viðkomandi hafi færni í mannlegum samskiptum.

 

Launakjör samkvæmt samningum Launanefndar sveitarfélaga og Samflots bæjarstarfsmannafélaga.

 

Starfið er laust nú þegar og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknum skal skilað fyrir 2.juni n.k. til Bæjarskrifstofu Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Höfn.

Nánari upplýsingar veitir Ásta H.Guðmundsdóttir eða Erna Einarsdóttir í síma 470-8000
Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica