Umhverfi og samfélag í mótun
Nú um helgina boðar Sveitarfélagið Hornafjörður til málþings í Nýheimum um umhverfismál sem endar svo á gönguferð út í Ósland.
Nú um helgina boðar Sveitarfélagið Hornafjörður til málþings undir yfirskriftinni "Umhverfi og samfélag í mótun". þar verða margir áhugaverðir fyrirlestrar svo sem Þróun sorpmála í Sveitarfélaginu Hornafirði, Umhverfisvernd og umgengni við fyrirtæki, Fuglaslóð á Suðausturlandi, fyrirlestur Guðrúnar Tryggvadóttur "Góð ráð fyrir þig og umhverfið" en Guðrún er framkvæmdarstjóra vefupplýsingamiðilsins Náttúran.is. Þorvarður Árnason, forstöðumaður Háskólasetursins mun kynna Verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs í fyrirlestri sínum.
Á málþinginu verður Umhverfisviðurkenning veitt og að loknu matarhlé verður farið í Gönguferð með leiðsögn frá Nýheimum í náttúruperluna Ósland undir stjórn Sigurðar Hannessonar. Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri mun svo slíta málþinginu við Óslandshraun.
Málþingið hefst kl. 9:00 á sunnudag í Nýheimum. Fundarstjóri verður Björg Erlingsdóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.
Hér er hægt að nálgast dagsskrá málþingsins ( pdf )
Rétt er að taka fram að allir eru velkomnir.





Skrifa athugasemd