Opnum sumardaginn fyrsta
Ný er verið að leggja lokahönd á þrif sundlaugar. Allt stýrikerfi er farið að virka eins og það á að gera. Nú er bara að stinga sér til sunds.
Slysavarnardeildin Framtíðin vinnur nú að því að þrífa nýju sundlaugina við Heppuskóla hátt og lágt áður en frumsýning laugarinnar fer fram n.k fimmtudag. Nú er komið að því að verkinu ljúki og íbúar í Sveitarfélaginu Hornafirði sem og gestir þeirra geti stungið sér til sunds, farið í eimbað, heita potta, vaðlaug, salíbunu í rennibrautum og sólað sig á sundlaugarlóð.
Hlökkum til að sjá íbúa og gesti n.k fimmtudag, starfmenn Sveitarfélagsins Hornafjarðar





Skrifa athugasemd