Fréttir
Leirusvæði
Leirusvaedi loftmynd
Loftmynd

31.03.2009 Fréttir

Íbúðalóðir á Höfn – Hagnýtar upplýsingar

Kynningafundur um nýbyggingar á Höfn

Sveitarfélagið vinnur nú að því að gera lóðir á Leirusvæði tilbúnar fyrir nýbyggingar.  Þó nokkrar fyrirspurnir hafa borist um lóðir á Leirusvæði, að því tilefni hefur sveitarfélagið ákveðið að boða til fundar og fara yfir hagnýtar upplýsingar fyrir áhugasama húsbygginendur svo sem gatnagerðargjöld, lóðagjöld, hvernig ber að grunda hús, hvar hægt er að ná í burðarhæft efni, hvaða gögn þarf að skila til byggingarfulltrúa og ýmis tengigjöld sem fylgja nýbyggingum. 
Boðað verður til fundar í Ráðhúsinu, Hafnarbraut 27, 3. hæð í fundarsal föstudaginn 3.apríl n.k í hádeginu (kl.12).  Vonumst til að sjá sem flesta bæði húsbyggendur og verktaka til ræða ýmis málefni tengd nýbyggingum.

 

 

Haukur Ingi Einarsson

Framkvæmdarstjóri tækni- og umhverfissviðs

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica