Nýja sundlaugin opnar á Sumardaginn fyrsta
Meðfylgjandi eru myndir af lokafrágangi
Allir verktakar vinna nú hörðum höndum við lokafrágang laugarinnar. Allt útlit er fyrir að verktakar ljúki vinnu sinni fyrir páska. Ákvörðun var hins vegar tekin um í dag að ekki væri skynsamlegt að opna laugina fyrir almenningi fyrr en búið væri að keyra laugarkerfið í nokkra daga. Þannig fæst líka tími fyrir starfsmenn að öðlist færni við stýringu kerfisins sem mikilvægt er til að tryggja öryggi sundlaugargesta.
Dagskrá opnunarhátíðar verður kynnt síðar.




Skrifa athugasemd