Minnum á hunda- og kattareglugerðir
Bætum umhverfið okkar og hirðum upp eftir hundana okkar
Það hafa borist ábendingar frá leikskólunum um að hundaskítur sé áberandi innan þéttbýlisins á Höfn og hefur meðal annars borist inn á leikskólalóðir. Hundaeigendur eru hvattir til þess að hirða upp eftir hundana sína og stuðla þannig að bættu umhverfi ásamt því að taka tillit til annarra íbúa í sveitarfélaginu. Jafnframt eru hundaeigendur beðnir að tryggja örugga vörslu hunda.
Bent er á reglugerðir um hunda- og kattahald um frekari upplýsingar sem hægt er að nálgast á vefslóðinni:
http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/stjornsyslan/nr/4711
http://www2.hornafjordur.is/stjornsysla/stjornsyslan/nr/4710
Haukur Ingi Einarsson
Framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs




Skrifa athugasemd