Fréttir
Hjalti og Guðrún
Lesið yfir samninginn
Mynd: SÓ

19.03.2009 Fréttir

Skólamáltíðir fyrir grunnskólanema og starfsfólk skólanna

Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Guðrún Valgeirsdóttir framkvæmdastjóri undirrita samning um skólamáltíðir

Fimmtudaginn 19. mars undirrituðu Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri og Guðrún Valgeirsdóttir framkvæmdastjóri samning um skólamáltíðir fyrir þrjú næstu skólaár frá og með skólaárinu 2009 - 2010. Skólamáltíðir fyrir grunnskólanema og starfsfólk skólanna voru boðnar út í febrúar síðastliðnum. Fjögur tilboð bárust og var Veitingastaðurinn Víkin með lægsta tilboðið.  Eftir yfirferð tilboða og annarra þátta sem að því lúta var ákveðið að semja við Víkina um þennan þátt skólastarfsins.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica