Hornafjörður í fjórða sæti
Sveitarfélagið Hornafjörður fær tæpar 68 miljónir í útgjaldajöfnunarframlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem gerir rúmar 29.000 krónur á hvern íbúa sveitarfélagsins. Þau sveitarfélög sem fá hærri upphæð en Hornafjörður eru Skagafjörður með tæpar 96 miljónir, Ísafjarðarbær tæpar 76 miljónir og Borgarbyggð með rúmar 73 miljónir. Framlög úr útgjaldajöfnunarsjóði er aðeins einn hluti af greiðslum úr Jöfnunarsjóði og er tilkomin m.a. vegna skólaaksturs úr dreifbýli, fækkun íbúa o.fl.
Greiðslur til Sveitarfélagsins Hornafjarðar skiptast þannig að tæpar 35 miljónir koma inn vegna íbúafjölda (miðað er við 1. desember 2002 og voru þá 2.332 íbúar í sveitarfélaginu) rúmar 10 miljónir eru vegna fjarlægðar innan sveitarfélagsins, rúmar 1,3 miljónir vegna fjölda þéttbýlisstaða, rúmar 19 miljónir vegna skólaaksturs úr dreifbýli og rúmar 2,3 miljónir vegna fækkunar íbúa. Vegna snjómokstur í þéttbýli fær Hornafjörður 0 kr. enda ekki snjónum fyrir að fara á þessu landshorni þar sem sumar er nánast alla mánuði ársins.





Skrifa athugasemd