Auglýsing um útboð vegna breytinga á Grunnskóla Hornafjarðar
Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir útboð vegna breytinga á eldri hluta Grunnskóla Hornafjarðar – Hafnarskóla
Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir útboð vegna breytinga á eldri hluta Grunnskóla Hornafjarðar – Hafnarskóla. Verkið felst í að breyta elsta hluta skólans í matsal, breytingum á jarðhæð úr kennslurými í vinnurými fyrir kennara og breytingum á efri hæð eldri byggingar í kennslustofur og aðstöðu fyrir bókasafn. Breytingum þessum fylgja verulegar lagfæringar á húsnæði, svo sem rif og endurbyggingu á útveggjum innanverðum, endurnýjun á gólfefnum, endurnýjun á gluggum, stækkun hurðaropa, endurnýjun á pípulögnum, nýjum raflögnum að hluta til o.fl. Að öðru leyti er vísað til útboðsgagna.
Gert er ráð fyrir að boðið verði í verkið í einu lagi í samræmi við útboðsgögn.
Útboðsgögn má nálgast á skrifstofu sveitarfélagsins að Hafnarbraut 27, Höfn frá og með þriðjudeginum 17. mars 2009. Tilboð verða opnuð kl. 14:00 föstudaginn 3. apríl.
Allar nánari upplýsingar um verkið gefur Björn Imsland, sími 470-8000/894-8413.
Stefán Ólafsson
framkvstj. fræðslu- og félagssviðs
Hornafjarðar




Skrifa athugasemd