Endurnýjun Vogabryggju.
Vogabryggja endurnýjuð.
Olgeir Jóhannesson er nú að leggja lokahönd á endurbætur Vogabryggju. Bryggjan er staðsett beint fyrir framan hafnarvogin á Höfn í Hornafirði. Bryggjan hefur um langt skeið þjónað sem viðlegukantur fyrir Björn lóðs sem er lóðsbátur Hafnar.
Bryggjan var byggð rétt eftir 1960 og allt fram til 1975 var landað fiski á bryggjunni. En eftir að ný bryggja við Miklagarð ( 1975 ) var byggð þá breyttist notkun Vogabryggju töluvert.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum héngu staurarni uppi á lyginni einni saman og tímabært að endurnýja þá.
Olgeir segist klára verkið í næstu viku. Honum til halds og traust í verkinu hefur verið Guðmundur Guðlaugsson sonur eins besta bryggjusmiðs landsins, Guðlaugs Einarssonar frá Fáskrúðsfirði. En Guðlaugur sá um að reka niður nýtt stálþil við Álaugareyjarbryggju á Höfn sumarið 2008.
HIE





Skrifa athugasemd