Flutningur á færanlegum kennslustofum.
Verið er að undirbúa jarðvinnu undir færanlegar kennslustofur austan við elsta hluta Hafnarskóla
Nú standa yfir framkvæmdir við Hafnarskóla. Verið er að undirbúa jarðvinnu fyrir færanlegar kennslustofur austan við elsta hluta Hafnarskóla. Geir Þorsteinsson vinnur verkið og honum til halds og traust í jarðvinnu er Ólafur Halldórsson. Búið er að afmarka vinnusvæðið með öryggisgirðingu til að tryggja öryggi nemenda. Nemendur fylgjast þó náið með úr fjarlægð.
Gert er ráð fyrir að þessum hluta framkvæmdarinnar ljúki um páska. Undirbúningur gagna vegna breytinga innandyra í Hafnarskóla er nú á lokastigi, en þó nokkrar breytingar verða gerðar þar. Þar verður útbúin matsalur, bókasafn verður flutt og aðstað fyrir kennara breytt svo eitthvað sé nefnt. Stefnt er að því að þessum framkvæmdum ljúki fyrir skóla árið 2009 – 2010.
Gláma - Kím eru arkitektar að breytingum og Verkfræðiþjónustan sér um verkfræðiþáttinn.
HIE





Skrifa athugasemd