Sópa ekki vandamálum undir teppi
“Samskipti í skólum” er yfirskrift námskeiðs sem haldið er þessa dagana á vegum grunnskólanna í Hornafirði og skólaskrifstofunnar. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru sálfræðingarnir Wilhelm Norðfjörð og Hugo Þórisson. Námskeiðið sækja 58 starfsmenn skólanna, kennarar, skólaliðar, stuðningsfulltrúar o.fl. Á námskeiðinu er farið í samskipti starfsmanna annars vegar og samskipti starfsmanna og nemenda hins vegar. Í stuttu spjalli sagði Wilhelm að svona námskeið væru af hinu góða og það góða við samskipti er að þau geta alltaf verið betri. Samskipti á vinnustað þurfa því ekki að vera slæm til þess að réttlæta svona námskeið.
Hann sagði líka að löng reynsla sín af samskiptum við Hornfirðinga sýndi að þeir væru mjög duglegir að takast á við vanda sem upp kæmi og væru ekki mikið fyrir það að sópa vandamálum undir teppi. Það var auðséð á þátttakendum að þeir félagar Wilhelm og Hugo eru hressir sálfræðingar sem eiga auðvelt með að stýra námskeiðum á skemmtilegan og lifandi hátt.





Skrifa athugasemd