ATVINNA
1. Umsjón með vinnuskóla á Höfn og í Nesjum
Starfið felst í skipulagningu og stjórnun vinnuskóla og skólagarða. Krafist er stúdentsprófs og reynslu í stjórnun sem og lipurð í mannlegum samskiptum, æskilegt er að umsækjandi hafi yfir að ráða þekkingu og/eða lokið námi í kennslufræðum.
2. Flokksstjórn í vinnuskóla á Höfn og í Nesjum
Starfið felst í að vinna með unglingum, aðallega í umhirðu grænna svæða sveitarfélagsins.
Umsækjendur þurfa helst að vera 20 ára eða eldri.
Tilvalið tækifæri fyrir þá sem vilja starfa í skemmtilegu umhverfi með skemmtilegum unglingum og öðlast reynslu á sviði stjórnunar.
3. Umsjón með skólagörðum
Starfið felst í því að taka á móti nemendum í yngri bekkjum Grunnskóla Hornafjarðar, leiðbeina og aðstoða nemendur við að rækta grænmeti, kartöflur og salöt. Æskilegt er að umsækjendur séu 18 ára eða eldri. Tilvalið fyrir þá sem hafa áhuga á að vera úti í náttúrunni og vinna með börnum.
4. Vinna við slátt
Umsækjendur þurfa að vera 16 ára eða eldri. Starfið felst í slætti á opnum svæðum, einkagörðum og almennri garðyrkju. Unnið er með m.a. sláttubíl, sláttuvélar og vélorf.
Hentar vel fyrir þá sem vilja vinna úti og í góðum félagsskap.
Umsóknareyðublöð
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu bæjarfélagsins og á heimsíðu Sveitarfélagsins
einnig má skila inn rafrænt á netfangið haukuri@hornafjordur.is. Skila ber umsóknum fyrir 15. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs í síma 470 8003
Höfn 17. febrúar 2009
Tækni- og umhverfissvið




Skrifa athugasemd