Aukin sorpflokkun í sveitarfélaginu
Um þessar mundir eru starfmenn Þjónustustöðvar Hornafjarðar að koma fyrir grenndargámastöðvum í þéttbýlinu á Höfn og grenndargámstöðvum í sveitum sem leysa af hólmi bláu gámana sem fyrir voru. Grenndarstöðvar á Höfn eru nú orðnar fjórar og standa þær við: Miðbæ, inn við Krónuhús og leikskólana Krakkakot og Lönguhóla. Á þessum stöðvum má skila af sér eftirtöldum flokkuðum úrgangi: Bylgjupappír, Sléttan pappír, Dagblöð og tímarit, Smátt brotajárn ( svo sem niðursuðudósir ) og Mjúkt plast ( svo sem filmuplast og plastpoka ) Stöðvunum er ætlað að þjóna nálægum íbúðarhverfum og gera þannig aðgengi íbúa að flokkunarstöðvum betra en það er í dag.
Samskonar grenndarstöðvum er verið að koma á í sveitum þar sem íbúum er gefinn kostur að flokka flest allan þann úrgang sem fellur til, ennfremur er allt heyrúlluplast sótt á bæi, þeir bændur sem óska eftir þessari þjónustu er bent á að hafa samband við tækni- og umhverfissviðs Hornafjarðar. Stefnt er að því að sækja heyrúlluplast 3 – 4 sinnum á ári. Grenndarstöðvar eru staðsettar á sömu stöðum og bláu gámar voru staðsettir áður en þeir eru við Jökulsá í Lóni, Mánagarð í Nesjum, Holt á Mýrum, Smyrlabjargará í Suðursveit, Hrollaugsstaði í Suðursveit og á Hala í Suðursveit. Samhliða þessu nýja fyrirkomulagi er stefnt að því að koma upp sérstöku fyrirkomulagi á söfnun brotajárns, timbri og dekkjum.
Almennar upplýsingar um flokkun sorps má finna á fenur.is og sorpa.is





Skrifa athugasemd