Aðalskipulag – Vegstæði yfir Hornafjarðarfljót
Bæjarstjórn Hornafjarðar auglýsir í dag tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 1998-2018, skv.1. mgr. 21. gr. Skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. Breytingin felst, í meginatriðum, í eftirfarandi:
1. Legu hringvegar nr. 1 milli Hólms á Mýrum og Skarðshóla í Nesjum, og tengingu við hann, breytt.
2. Skilgreind eru efnistökusvæði, sem fyrirhugað er að nýta vegna byggingar hins nýja vegar.
3. Þverbraut (flugbraut) við Hornafjarðarflugvöll er felld út. Breytingartillagan, ásamt umhverfisskýrslu, verður til sýnis á bæjar-skrifstofu Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, á venjulegum opnunartíma, frá og með fimmtud. 5. febrúar, 2009, til og með fimmtud. 5. mars, 2009.
Breytingartillagan, ásamt umhverfisskýrslu, er einnig til sýnis á heimasíðu sveitarfélagsins hér
Allir þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að gera athugasemdir við breytingartillöguna og er frestur gefinn til fimmtud. 26. mars, 2009.
F.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar, 5. febrúar, 2009.
Haukur Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri tæknisviðs





Skrifa athugasemd