Fundur um atvinnumál í sveitum
Sveitarfélagið Hornafjörður stóð fyrir fundi um atvinnumál í sveitum að Smyrlabjörgum í Suðursveit miðvikudagskvöldið 14. janúar síðast liðinn. Þar var rætt um atvinnumálin til sveita eins og þau horfa við fólki um þessar mundir og hvað væri hægt að gera í framtíðinni.
Erna Bjarnadóttir hagfræðingur hjá Bændasamtökum Íslands (BÍ) ræddi um stöðu atvinnu í sveitum um þessar mundir og hvernig staða bænda væri í efnahagskreppunni. Hún fór einnig aðeins inn á hvaða breytingum BÍ náðu fram á matvælafrumvarpinu áður en það verður lagt fram á alþingi og þróun á landbúnaðarstefnu ESB. Jón G. Guðbjörnsson framkvæmdarstjóri Framleiðnisjóðs Landbúnaðarins (FL) fór yfir tillgang og stöðu sjóðsins og sýndi dæmi um hvers konar verkefni sjóðurinn hefði styrkt undanfarin ár. Einnig hélt hann erindi um verkefnið Vaxtarsprotar sem er samstarfsverkefni FL og Impru og hefur það að markmiði að hvetja til fjölbreyttrar atvinnusköpunar í sveitum. Ari Þorsteinsson nýráðin verkefnisstjóri Impru á Höfn fór yfir starfsemi hennar og hvað Impra býður upp á fyrir fólk sem vill hefja atvinnurekstur eða koma hugmyndum sínum niður á blað. Í lokin ræddi Guðmundur H. Gunnarsson verkefnisstjóri Matís á Höfn um tækifæri í smáframleiðslu matvæla sem er stuðningsverkefni fyrir einstaklinga og fyrirtæki í Sveitarfélaginu Hornafirði sem vilja vinna að framleiðslu og þróun matvæla. Þar leggur Matís fram vinnuaðstöðu fyrir smáframleiðsluna í matvælasmiðju sinni sem opnuð var síðastliðið haust.
Fundurinn var vel sóttur og sköpuðust umræður um ýmis málefni tengd sveitunum.





Skrifa athugasemd