Fréttir
Hornafjörður
Hornafjörður

19.01.2009 Fréttir

Ný byggðaáætlun

Umfjöllun um bókun bæjarráðs

Á 446. bæjarráðs var rætt um mótun nýrrar byggðaáætlunar fyrir árin 2010-2013.  Í bókun bæjarráðs er eftirfarandi: Byggðaáætlun er eitt mikilvægasta verkefni stjórnvalda.  Lykilorð nýrrar byggðaáætlunar á að vera aukin lífsgæði, aukin verðmæti og nýir íbúar.  Samstarf og samvinna opinberra aðla, fyrirtækja og einstaklinga á að leiða til nýsköpunar, framþróunar og betra samfélags.  Markmiðið er að auka fjölbreytni en jafnframt að styrkja það sem fyrir er þannig að svæðið blómstri.  Landsbyggðin á ekki að vera neitt minna en eitt besta landsvæði heimsins til að lifa, vinna og mennta sig á.  Þetta verður ekki gert nema með því að byggja upp stuðning í nærumhverfinu.  Fjarlægar stofnanir geta síður orðið hluti af þeim drifkrafti sem til þarf að snúa vörn í sókn.  Þess vegna er uppbygging þekkingarsetra lykilþáttur í uppbyggingu á landsbyggðinni.  Bæjarráð Hornafjarðar leggur áherslu á að ekki á að skilgreina sérstök kjarnasvæði heldur að styðja við frumkvæði og vilja íbúa á hverjum stað.

Bæjarstjóra var falið að senda umsögn til iðnaðarráðherra og byggðastofnunar í þessum anda.

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica