Fréttir
Íslandsmeistarar í Blaki (úr myndasafni)
Íslandsmeistarar í Blaki (úr myndasafni)
Íslandsmeistarar í Blaki

08.01.2009 Fréttir

Íþrótta- og tómstundakort

Á 132. fundi bæjarstjórnar Hornafjarðar var samþykkt tillaga um að sveitarfélagið taki upp svokölluð íþrótta- og tómstundakort fyrir aldurshópinn 6-18 ára. Þessi kort eru á formi 10.000 kr. styrks til íþrótta- og tómstundaiðkunar í sveitarfélaginu. Samþykkt var að þetta kæmi til framkvæmda frá og með 1. janúar 2009.

 

Meginmarkmið íþrótta- og tómstundakortsins er að gefa börnum og unglingum á aldrinum 6 -18 ára aukna möguleika á að taka þátt í  uppbyggilegu starfi íþróttafélaga, tónskóla og annarra aðila sem standa fyrir íþrótta- og tómstundastarfi í sveitarfélaginu. Með kortinu má þannig greiða fyrir skipulagða íþrótta-, lista- og tómstundastarfsemi á vegum félaga og samtaka á Hornafirði.

Meðal helstu skilyrða fyrir veitingu styrks er að iðkendur og félag eða stofnun eigi lögheimili í Sveitarfélaginu Hornafirði. Því er ekki greitt fyrir iðkun hjá félögum og stofnunum utan okkar sveitarfélags. Þá er lögð áhersla á að um skipulagt starf eða kennslu sé að ræða sem stundað er undir leiðsögn þjálfara, kennara eða leiðbeinanda og nær yfir eina önn að lágmarki 10 vikur og fari fram á árinu 2009. Þetta á t.d. við um starfsemi viðurkenndra íþrótta- og æskulýðsfélaga, nám við tónlistarskóla, o.fl. Þá er mælst til að umrædd  félög stilli verðlagi á æfingagjöldum sínum í hóf.

Helstu reglur um notkun styrkjanna eru að ráðstafa  má þessari fjárhæð til fleiri en einnar greinar á hverju tímabili. Eftirstöðvar íþrótta- og tómstundakorts, ef einhverjar eru, er ekki heimilt að færa milli ára og falla þær niður í lok hvers árs. Íþrótta- og tómstundakortið er hægt að nýta til kaupa á kortum í líkamsræktarstöðvum í sveitarfélaginu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum um fræðslu til iðkenda og utanumhald. Með íþrótta- og tómstundakortinu er ekki mögulegt að greiða fyrir sérstakan viðbótarkostnað, svo sem tæki og búnað, fatnað, ferðakostnað o.þ.h.

Ferli um greiðslur styrkja: Foreldrar og forráðamenn skrá barn á námskeið hjá félagi sem fellur undir reglur um íþrótta- og tómstundakort. Foreldrar greiða fyrir viðkomandi námskeið og fá afhenta kvittun frá félaginu sem það lætur fylgja með umsókn um frístundakortið til sveitarfélagsins og í kjölfarið er styrkur greiddur í afgreiðslu sveitarfélagsins inn á uppgefinn bankareikning.

Það er von Sveitarfélagsins Hornafjarðar að umræddar greiðslur vegna tómstundaiðkunar barna og ungmenna megi nýtast sem best og um leið efla það íþrótta- og tómstundastarf sem hér þrífst svo ágætlega.

 

- Stefán Ólafsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica