Jólatréssöfnun
Starfmenn áhaldahúss munu safna saman jólatrjám á Höfn og í Nesjahverfi fimmtudaginn 8. janúar og mánudaginn 12. janúar n.k. Þeir íbúar sem ætla að nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlega beðnir um að setja jólatrén út að morgni fimmtudags 8. janúar og að morgni mánudags 12 janúar n.k og koma trjánum þannig fyrir að þau verði vel sýnileg og að aðgengi verði gott.
Áhaldahús vill einnig benda íbúum á þann möguleika að losa jólatré við Fjárhúsavík.
Starfsfólk Áhaldahúss óskar Hornfirðingum gleðilegs nýs árs.





Skrifa athugasemd