Áherslur á að verja eftir mætti stöðu heimila og fyrirtækja.
Fjárhagsáætlun 2009
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun 2009 fór fram í bæjarstjórn Hornafjarðar 18.des. sl. Helstu áherslur sveitarfélagsins á næsta ári eru að verja eftir mætti stöðu heimila og fyrirtækja á Hornafirði, halda vel utan um fjármuni og endurskoða fjárhagsáætlunina ársfjórðungslega. Álagning fasteignagjalda verður óbreytt og útsvar verður 13,28%. Gjaldskrár þjónustugjalda sveitarfélagsins hækka ekki milli ára. Þá kom fram að fjárhagsstaða sveitarsjóðs er góð.
Helstu niðurstöðutölur fjárhagsáætlunar 2009 við fyrri umræðu eru þessar:
A-hluti:
Skatttekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar 1.066,5 m.kr., aðrar tekjur 178,0 m.kr. Tekjur samtals eru því kr. 1,244,5 m.kr. Rekstur málaflokka er áætlaður um 1.200 m.kr. Fjármagnsliðir eru 22,7 m.kr. Mismunur tekna og gjalda A-sjóðs sveitarfélagsins er því afgangur um 21,6 m.kr. Handbært fé frá rekstri eru 124,7 m.kr., fjárfestingar 200 m.kr., afborganir langtímalána 91,2 m.kr. og handbært fé í árslok er áætlað 343,7 m.kr.
A og B hluti:
Tekjur eru áætlaðar 1,413 m.kr. en rekstrargjöld 1,308 m.kr. Fjármagnsliðir eru 103,2 m.kr. Tekjur umfram gjöld verða því um 2,1 m.kr. Handbært fé frá rekstri eru 174,0 m.kr., fjárfestingar 247,1 m.kr., afborganir langtímalána 110,1 m.kr., lántaka verður 32 m.kr. og handbært fé í árslok er áætlað 344,3 m.kr.





Skrifa athugasemd