Atvinnumálanefnd Hornafjarðar auglýsir eftir umsóknum í atvinnu- og rannsóknasjóð
Atvinnumálanefnd Hornafjarðar auglýsir eftir umsóknum í atvinnu- og rannsóknasjóð Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Um er að nýjan sjóð í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar sem settur var á laggirnar í kjölfar sölu á húsnæði Nesjaskóla. Markmið sjóðsins er að efla byggð og atvinnu í sveitarfélaginu og ætlað að veita styrki til atvinnuþróunar, nýsköpunar og rannsókna. Þeir sem hafa lögheimili í sveitarfélaginu og hafa þar fasta búsetu geta sótt um styrki til sjóðsins.
Atvinnumálanefnd Hornafjarðar hefur umsjón með sjóðnum og tekur við umsóknum og afgreiðir þær.
Nánari upplýsingar veitir Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Hornafjarðar, í síma 470 -8000 / 822-7950 og í netfangið hjaltivi@hornafjordur.is
Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2008.
Reglur sjóðsins má finna hér. (pdf)
Umsóknareyðublað má finna hér. (doc)





Skrifa athugasemd