Fréttir
Samningur um flokkun úrgangs undirritaður
Samningur um flokkun úrgangs undirritaður
Frá undirritun samnings um flokkun úrgangs undirritaður, Haukur Ingi Einarsson og Aðalsteinn Ingólfsson (úr myndasafni 2007)

02.12.2008 Fréttir

Lækkum gjöld heimilanna með því að flokka sorp og endurvinna heimilisúrgang.

Frá því sveitarfélagið hóf samstarf við Sagaplast ehf.um endurvinnslu á úrgangi hefur náðst góður árangur í endurvinnslu. Árangurinn sést bæði í lækkun rekstrarkostnaðar málaflokksins og samdráttar í urðun magni úrgangs. Mestur árangur frá því áður var hefur náðst í endurvinnslu bylgjupappa, sléttum pappa, dagblöðum, tímaritum, dekkjum og plasti einnig heyrúlluplasti frá bændum.

Sveitarfélagið vill stíga fleiri skref til aukinnar flokkunar og bjóða heimilum að njóta fjárhagslegs ávinnings samhliða því. Þau heimili sem taka virkan þátt í flokkun hafa veitt því athygli að ein tunna dugar rúmlega fyrir heimilið og hafa bent á að hálf tunna sé nægjanleg fyrir almennan heimilisúrgang. Því býðst heimilum nú að velja á milli tveggja stærða á sorpílátum. Annarsvegar 240 l. sorpíláta eins og núverandi sorpílát eru eða hinsvegar 120 l. sorpíláta.Þau heimili sem velja 120 ltr. Sorpílát njóta helmings afsláttar sorpeyðingargjalda. Sorpeyðingargjald síðasta árs var 6.200 kr. fyrir hverja 240 ltr. tunnu.

Áhugasömum er bent á að sækja um minni sorpílát fyrir 15. des nk. Starfsmenn Áhaldahúss munu skipta um tunnur í janúar hjá þeim heimilum sem óska eftir 120 ltr. tunnum.

Umsóknareyðublöð ná nálgast hér. Skila má umsóknum á netfangið annalilja@hornafjordur.is eða senda á póstfangið
Ráðhús Hornafjarðar
Afgreiðsla
Hafnarbraut 27
780 Höfn

Haukur Ingi Einarsson
Framkvæmdastjóri tækni-og umhverfissvið

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica