Nýtt deiliskipulag vegna knattspyrnuhúss við Víkurbraut á Höfn
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti á fundi sínum 14.08.2008 deiliskipulagstillögu að knattleikjahús við Víkurbraut á Höfn. Ný deiliskipulagstillaga afmarkast af Víkurbraut, brekkufæti Garðshóls, íþróttavelli , og lóðamörkum ,, Lönguvitleysu" og felst í að skilgreina lóð og byggingarreit fyrir knattleikjahús og tilheyrandi þjónustubyggingu á Höfn. Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga frá 22.05.2008 - 17.07.2008. Sjö athugasemdir bárust og hafa umsagnir sveitastjórnar um þær verið sendar þeim sem þær gerðu. Deiliskipulagið hefur verið sent Skipulagsstofnun til yfirferðar.
Athugasemdir og svör við þeim má nálgast í Ráðhúsi Hornafjarðar Hafnarbraut 27, 780 Hornafjörður og hér á vef Sveitarfélagsins. Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdarstjóri tækni- og umhverfissvið Hornafjarðar.
Tækni- og umhverfissvið Hornafjarðar





Skrifa athugasemd