Lækkun gjalda á fjölskyldur í Sveitarfélaginu Hornafirði
Bæjarstjórn Hornafjarðar setti á 125. fundi sínum þann 6. febrúar 2008 á laggirnar stýrihóp um mótun fjölskyldustefnu. Eitt af verkefnum nefndarinnar var að greina kostnað fjölskyldna vegna leikskólagöngu, tónlistarnáms, lengdrar viðveru og iðkendagjöld í æskulýðs og íþróttastarfi. Undir þessum þætti stefnunnar bar stýrihópnum sérstaklega að skoða systkinaafslátt og kanna kosti þess að taka upp frístundakort. Stýrihópurinn hefur nú skilað tillögum sínum um lækkun leikskólagjalda og gjalda fyrir lengda viðveru. Þá hefur stýrihópurinn tekið afstöðu til systkinaafsláttar. Að lokum gerði stýrihópurinn tillögu um stuðning við fjölskyldur vegna íþróttaiðkunar. Stýrihópurinn mun ekki ljúka vinnu sinni fyrr en vorið 2009 þegar heildstæða fjölskyldustefna verður gefin út fyrir sveitarfélagið.
Með tillögum fjölskyldunefndar er komið til móts við fjölskyldur á svæðinu. Gjöld fyrir leikskólagöngu, lengda viðveru og íþróttaiðkun geta vegið þungt í bókhaldi heimilanna. Það er enn brýnna að sveitarfélagið komi til móts við fjölskyldur í sveitarfélaginu og lækki gjöld vegna þess ástands sem varir í efnahagslífi þjóðarinnar. Með þeim tillögum sem stýrihópur um fjölskyldustefnu hefur lagt fram verða þau gjöld sem fjölskyldur greiða vegna leikskólagöngu barna sinna, lengdrar viðveru og iðkendagjöld í tómstundastarfi með því lægsta sem tíðkast á landsbyggðinni. Einnig er vert að hafa í huga að á Hornafirði er stefnt að því að öll börn eins árs og eldri geti sótt leikskóla.
Bæjarstjórn samþykkti tillögur stýrihóps um fjölskyldustefnu á fundi sínum, fimmtudaginn 14. ágúst.
Lengd viðvera og leikskólagjöld
Leikskólagjöld og gjöld fyrir lengda viðveru lækka um 10%, systkinaafsláttur fyrir annað barn verður 50% og 100% afsláttur fyrir þriðja barn. Þá verður systkinaafsláttur tengdur á milli skólastiga þannig að foreldrar sem eiga börn í leikskóla fá aukinn afslátt fyrir barn sitt í lengdri viðveru.
Leikskólagjöld hafa ekki hækkað að krónutölu síðan 1. janúar 2006. Á sama tíma hefur vísitala hækkað um úr 248,9 stigum í 304,4. Ef fylgt hefði verið vísitölu myndi gjald fyrir átta tíma hafa hækkað um 4.310 krónur, úr 19.329 krónum í 23.639 krónur. Miðað við þessa hækkun vísitölu má færa rök fyrir að raunlækkun leikskólagjalda sé alls 26,5% frá 1. janúar 2006 til 1. september 2008 þegar tillögur þessar koma til framkvæmda.
Grunngjald fyrir leikskólavistun breytist með eftirfarandi hætti:
|
|
Almennt gjald |
Gjald forgangshópa |
||
|
|
Áður |
10% lækkun |
Áður |
10% lækkun |
|
4 klst. |
9.664 |
8.698 |
6.765 |
6.089 |
|
5 klst. |
12.080 |
10.872 |
8.457 |
7.611 |
|
6 klst. |
14.497 |
13.047 |
10.147 |
9.132 |
|
7 klst. |
16.913 |
15.228 |
11.839 |
10.655 |
|
8 klst. |
19.329 |
17.396 |
13.530 |
12.177 |
|
9 klst. |
21.746 |
19.571 |
15.222 |
13.699 |
Grunngjald fyrir lengda viðveru breytist með eftirfarandi hætti:
|
Fjöldi |
Tími |
Verð áður í kr. |
Eftir 10% lækkun |
|
1-10 |
klst. á mánuði |
2.147 |
1.932 |
|
11-20 |
klst. á mánuði |
4.190 |
3.771 |
|
21-30 |
klst. á mánuði |
6.132 |
5.519 |
|
31-40 |
klst. á mánuði |
7.972 |
7.174 |
|
41-50 |
klst. á mánuði |
9.709 |
8.738 |
|
51-60 |
klst. á mánuði |
11.345 |
10.210 |
|
61-70 |
klst. á mánuði |
12.877 |
11.589 |
Tillögur fjölskyldunefndar munu hafa umtalsverð áhrif á fjölskyldur á svæðinu:
- Fjölskylda með eitt barn á leikskóla mun greiða 1.933 krónur minna á mánuði eða 21.262 krónum minna á ári.
- Fjölskylda með tvö börn á leikskóla mun greiða 7.732 krónum minna á mánuði eða 85.048 krónur minna á ári.
- Fjölskylda með þrjú börn á leikskóla mun greiða 17.396 krónum minna á mánuði eða 191.5357 krónum minna á ári.
- Þá fela tillögur fjölskyldunefndar einnig í sér 10% lækkun grunngjalds fyrir lengda viðveru. Við það lækkar vistun í 41-50 klst. á mánuði um 971 krónur og alls 9.224 krónur fyrir árið.
- Fjölskylda með eitt barn í leikskóla í átta tíma og í lengdri viðveru í 41-50 klst. á mánuði kemur til með að lækka útgjöld um 71.992 krónur á ári.
Kostnaðaraukning fyrir sveitarfélagið í krónum talið vegna þessarar breytingar er áætluð kr. 2.887.000 á ári miðað við forsendur vorið 2008.
Eftir þessa breytingu mun Sveitarfélagið Hornafjörður standa vel að vígi miðað við önnur sveitarfélög hvað leikskólagjöld varðar
Íþróttaiðkun barna og ungmenna
Stýrihópurinn um fjölskyldustefnu hefur lagt til að sveitarfélagið taki upp svokölluð frístunda/tómstundakort fyrir aldurshópinn 6-18 ára. Þessi kort eru á formi 10.000 kr. styrks til iðkunar á íþróttum- og/eða tómstundum í sveitarfélaginu. Fjölskyldunefndin vísar í að mörg sveitarfélög hafa verið að taka upp þessi frístundakort og af þeim sökum þurfi Sveitarfélagið Hornafjörður að fylgja í kjölfarið vegna samkeppnisstöðu við önnur sveitafélög og til að stuðla að því að sem flestir foreldrar geti gefið börnum sínum kost á að stunda íþróttir og tómstundir. Kostnaður vegna frístundakorta er áætlaður 4.260.000 kr.
Stuðningur sveitarfélagsins við íþróttafélög á svæðinu er eftirfarandi:
|
|
Upphæð |
|
Hestamannafélagið Hornfirðingur vegna barna- og ungmennastarfs |
425.000,00 |
|
Akstursíþróttafélag Austur-Skaftafellssýslu |
100.000,00 |
|
Hestamannafélagið Hornfirðingur vegna byggingar nýrrar reiðhallar |
2.588.000,00 |
|
Golfklúbbur H.fjarðar vegna barna- og ungmennastarf |
425.000,00 |
|
Ungmennafélagið Máni |
300.000,00 |
|
Golfklúbbur H.fjarðar samkvæmt samningi um vallarframkvæmdir |
2.567.000,00 |
|
Ungmennafélagið Sindri vegna rekstur vallar |
2.400.000,00 |
|
Ungmennafélagið Sindri vegna íþrótta- og æskulýðsstarfs |
5.000.000,00 |
|
Ungmennafélagið Sindri vegna leikjanámskeið |
750.000,00 |
|
|
|
|
|
14.555.000,00 |
Stuðningur sveitarfélagsins Hornafjarðar í formi frístundakorta er til viðbótar við stuðning sveitarfélagsins við íþrótta- og tómstundastarf í sveitarfélaginu.




Skrifa athugasemd