Fréttir
Þrekstöð við Júllatún
Þrekstöð við Júllatún
Þrekstöð við Júllatún - teikning
Mynd 3 af 4
1 2 3 4

10.07.2008 Fréttir

Ný útiþrekstöð opnuð á túninu fyrir neðan Hótel Höfn

Næstkomandi miðvikudag verður ný útiþrekstöð vígð sem starfsmenn Sveitarfélagsins eru að koma upp á túninu milli Júllatúns og heilsugæslustöðvarinnar og með þessu glæsilega útsýni. Þrekstöðin samanstendur af upphífingarslá, dýfu grind, lyftingarslá, stigbekk, bekk fyrir kviðæfingar, göngugrind og svifrá sjá meðfylgjandi teikningar og myndir. Stöðinni er ætlað að efla heilsu íbúa á Höfn ásamt því að auka á fjölbreytni útivistar innan Hafnar fyrir íbúa sveitarfélagsins og því kjörið að koma þar við á heilsubótargöngunni til að taka þar hinu ýmsu æfingar.Hugmyndin af þrekstöðinni er spunnin út frá ósk bæjarráðs um fjölskylduvænt umhverfi.

Um 20 metrum ofar mun síðar í þessum mánuði verða opnaður púttvöllur sem verður opin öllum í sumar og er framkvæmd hans undir stjórn golfmeistarans Halldórs Steinars Kristjánssonar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica