Víkurbrautin lokuð miðvikudag vegna framkvæmda
Haukur Ingi Einarsson framkvæmdarstjóri umhverfis og tæknisviðs Hornafjarðar vill koma því á framfæri við þá vegfarendur sem þurfa að fara Víkurbrautina á morgun miðvikudag að hún verður lokuð á móts við Heppuskóla. Vegfarendum er bent á að fara Hafnarbrautina á meðan framkvæmdin stendur yfir. Þessi framvæmd tengist nýju sundlaugarbyggingunni því verið er að leggja nýja heitavatnslögn í nýju sundlaugina.
Íbúar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þeim.





Skrifa athugasemd