Fréttir
Ljósapera
Ljósapera
Ljósapera

08.07.2008 Fréttir

Sveitarfélagið styrkir bætta lýsingu í dreifbýli

Sveitarfélagið Hornafjörður stendur fyrir verkefni sem felur í sér að bæta lýsingu í dreifbýli. Fyrr á árinu voru reglur um úthlutun styrkja vegna þessa verkefnis samþykktar og í kjölfarið sent út dreifibréf á heimili í sveitum. Umsóknarfrestur var þá auglýstur til 20. júní og bárust fimm umsóknir fyrir þann tíma. Bæjarráð hefur samþykkt þær umsóknir og verður greiddur til þeirra hámarksstyrkur á hvert heimili samkv. reglum. Á fundi bæjarráðs í morgun var samþykkt að framlengja umsóknarfrestinn til 1.ágúst n.k.

Hér er hægt að nálgast reglurnar um úthlutun ásamt umsóknareyðublaði.

 
Reglur og umsóknareyðublað

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica