Fagri Hornafjörður og fagra Ísland
Umhverfið hefur verið til umræðu í fjölmiðlum upp á síðkastið og því vel við hæfi að benda áhugasömum á það fræðslustarfi sem umhverfisráðuneytið stendur fyrir. Við getum öll sem í þessu sveitarfélagi búum lagt okkar af mörkum til að styðja við umhverfismálin en eins og Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra segir þá eru úrlausnarefnin á sviði umhverfismála eru hvort tveggja í senn, brýn og margslungin. Hversdagsleg störf eins og það að fara út með ruslið gefa okkur færi á að breyta rétt gagnvart umhverfinu. Stærri ákvarðanir eins og t.d. hvers konar samgöngur við notum eru ekki síður dæmi um val sem hvert okkar stendur frammi fyrir.
Þórunn segir einnig að það sé í okkar höndum, hvers og eins, að sjá til þess að líf okkar og neysla stuðli að minni mengun, betri nýtingu auðlinda og bjartri framtíð fyrir afkomendur okkar. Það er á ábyrgð stjórnvalda hverju sinni að búa svo í haginn fyrir almenning að grænu kostirnir séu nærtækir og hagkvæmir.
Áherslur umhverfisráðherra.
Í bæklingnum er greint frá sýn Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra á helstu verkefni umhverfisráðuneytisins á kjörtímabilinu 2007 til 2011.
http://www.umhverfisraduneyti.is/media/PDF_skrar/aherslur.pdf
Skref fyrir skref.
Endurútgefið og uppfært fræðslurit sem umhverfisráðuneytið og Landvernd gefur út í sameiningu. Ritinu er ætlað að hvetja fólk til dáða á sviði umhverfismála og að auðvelda því að tileinka sér breytta og betri lífshætti.
http://www.umhverfisraduneyti.is/media/PDF_skrar/Skreffyrirskref.pdf
Loftlagsbreytingar.
Í bæklingnum er sagt frá orsökum og afleiðingum loftslagsbreytinga. Þá er einnig greint frá aðgerðum sem grípa verður til svo koma megi í veg fyrir hamfarir sem kunna að verða af völdum loftslagbreytinga.
http://www.umhverfisraduneyti.is/media/PDF_skrar/loftslagsbreytingar.pdf
- Haukur Ingi Einarsson
Framkvæmdarstjóri tækni- og umhverfissviðs





Skrifa athugasemd