Fréttir
Dreymir ekki flesta um að búa á svona stað!
Dreymir ekki flesta um að búa á svona stað!

06.05.2008 Fréttir

Vorhreinsun á Höfn í Hornafirði

Hin árvissa vorhreinsun á Hornafirði hefst laugardaginn 10. maí og stendur til miðvikudagsins 14. maí. Íbúar eru hvattir til að taka til í görðum sínum og starfmenn Áhaldahúss aðstoða garðeigendur með að fjarlægja garðaúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk dagana 13. og 14. maí.
Starfsmenn Áhaldahúss biðja garðeigendur um að hafa eftirfarandi í huga:
-Setja garðúrgang í poka.
-Ekki blanda við jarðúrgang lausum jarðvegi og öðru rusli.
-Ágætt er að binda greinaafklippur í knippi.
Vakin er athygli á að ekki verða fjarlægð stór tré eða trjástofnar. Eingöngu verður fjarlægður garðaúrgangur. Þeim sem þurfa að losa sig við annað rusl eða muni er bent á gámaport við Áhaldahús. Athygli er vakin á því að allan garðaúrgang á að losa út við Fjárhúsavík.
Um nánari upplýsingar og ábendingar vegna vorhreinsunar er vísað á Tækni og umhverfissvið og afgreiðslur sveitarfélagsins í síma 470-8000.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica