Það sem til þarf er kjarkur og þolinmæði til að hrinda því í framkvæmd
Framtíð Hafnarsvæðisins og Heppu
Þann 29. apríl s.l. var fundur Pakkhúsinu með bæjarstjórn og ráðgjöfum um Hafnarvík og Heppu. Gísli Sverrir Árnason, ráðgjafi hjá R3, fór yfir endurgerð gamalla húsa og þyrpinga víða um land. Greindi hann frá stöðu í endurgerð húsa á Hornafirði og ræddi hugmyndir um nýtingu mannvirkja við Hafnarvík og á Heppu. Hugmyndir eru uppi um frekari uppbyggingu atvinnulífs, menningar, ráðstefnuhalds og útivistar. Sagði hann frá hugmyndum um nýtingu á Miklagarði, Graðaloftinu, Pakkhúsinu, Gömlubúð, Kaupfélagshúsi og kartöfluhúsi. Dæmi um hugmyndir voru sjóminjasafn, aðstaða fyrir sýningar og fundaraðstöðu, smáverslanir, kaffibar og veitingahús, gestastofu fyrir listamenn og verbúð, opnar vinnustofur handverks- og listamanna, skrifstofur, beitningaraðstaða, lúxusgisting, Listasafn Svavars Guðnasonar, krambúð, upplýsingamiðstöð fyrir svæðið, listamannaíbúð, náttúruminjasafn og sýningarsalir.
Garðar Jónsson sagði frá hugmyndum um fjármögnun verkefnisins og rekstrarfyrirkomulag.
Heildarkostnaðaráætlun er 316 m.kr, þ.e. flutningur Gömlubúðar, endurgerð Graðalofts og uppbygging Miklagarðs (sem er samtals 202 m.kr.). Tillögur gera ráð fyrir blandaðri fjármögnun, 1/3 frá sveitarfélagi, 1/3frá ríki og 1/3 af lánum og fyrirtækjum. Árni Kjartansson, arkitekt hjá Glámu Kím, fór yfir þróun byggðar á Höfn, byggðina á Heppu og umhverfis Hafnarvík. Árni kynnti lykilmannvirki á staðnum og hugmyndir arkitekta um skipulag og uppbyggingu á svæðinu. Árni lagði áherslu á að svæðið verði áfram táknmynd athafnalífs á Höfn. Í framhaldinu fóru félagar Árna hjá Glámu Kím yfir áætlanir um uppbyggingu Miklagarðs og deiliskipulag fyrir hafnarsvæðið. Um kvöldið var opinn fundur í Pakkhúsinu. Vel var mætt eða um fimmtíu manns. Fundurinn um kvöldið var keimlíkur þeim sem var með bæjarstjórn. Í kjölfar framsöguerinda sköpuðust góðar umræður og almennt mátti skilja á fundarmönnum að þeim þótti hugmyndin áhugaverð og þess verð að hrinda í framkvæmd. Í mínum huga er ekki spurning um að Hafnarvík Heppa er næsta stóra verkefnið í byggða- og atvinnumálum. Það sem til þarf er kjarkur og þolinmæði til að hrinda því í framkvæmd.
- Ofangreindur pistill er tekinn af bloggi Hjalta Þórs Vignissonar bæjarstjóra





Skrifa athugasemd