Framtíð hafnarsvæðisins og Heppu
Þriðjudaginn 29. apríl verður opinn fundur um framtíð hafnarsvæðisins. Gísli Sverrir Árnason, Árni Kjartansson og starfsmenn Glámu-Kím kynna verkefnið Hafnarvík Heppa í Pakkhúsinu kl. 20:00 og eru íbúar sveitarfélagsins hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um framtíð svæðisins. Unnin hefur verið skýrsla þar sem farið er yfir framtíðar skipulag svæðisins, starfsemi og endurgerð húsa og verður afrakstur þeirrar vinnu kynntur á fundinum. Hafnarsvæðið býður uppá mikla möguleika og mikilvægt að íbúar sveitarfélagsins, fyrirtæki og stofnanir taki þátt í framtíðar skipulagi og uppbyggingu svæðisin, velti fyrir sér þeirri starfsemi sem þar á að vera og framtíð þeirra húsa sem til umræðu eru í þessu verkefni.
Ásýnd svæðisins hefur þegar tekið miklum breytingum við endurgerð gömlu Kaupfélagshúsanna við Hafnarbraut og aukin starfsemi boðar aukið mannlíf á hafnarsvæðinu. Þetta er því spennandi verkefni og mikið hagsmunamál fyrir okkur hér á Hornafirði og mikilvægt að íbúar láti í sér heyra, komi hugmyndum sínum og tillögum áleiðis.





Skrifa athugasemd