Undirskrift vegna sölu á Nesjaskóla
Skrifað var undir kaupsamning á húsnæði Nesjaskóla á Degi umhverfisins þann 25. apríl 2008. Guðjón Pétur Jónsson og Ásta H. Guðmundsdóttir kaupir húsnæðið af ríki og sveitarfélagi og hyggst nýta húseignirnar fyrir ferðaþjónustu. Þær húseignir sem afhendast nú eru heimavist, mötuneyti og annað húnsæði sem er sambyggt þessum eignum. Kennsluhúsnæði sem enn er notað af sveitarfélaginu afhentist ekki strax. Sveitarfélagið Hornafjörður óskar Guðjóni Pétri og Ástu til hamingju með eignina og óskar þeim góðs gengis með þá starfsemi sem þau hyggja á í Nesjaskóla.
Á næstunni verður tekin ákvörðun hvernig andvirði af sölu skólans skuli ráðstafað. Bæjarráð hefur fjallað um málið og unnið út frá þeirri tillögu að allt að 25 m.kr. verði notaðar í viðhald og endurbætur á fasteignum sveitarfélagsins í sveitum og lagfæringar á umhverfi þeirra. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir viðhaldi fasteigna sveitarfélagsins í sveitum eigi sér stað árið 2009.
Þá gerir tillagan ráð fyrir að settur verður á fót atvinnu- og rannsóknarsjóður sem hafi það að markmiði að efla byggð og atvinnu í sveitarfélaginu öllu. Lagðar verða fram 20 miljónir króna af hálfu sveitarfélagsins en jafnframt verði skorað á ríkið að leggja hlut þess af sölu Nesjaskóla í sjóðinn sem er um 15 miljónir króna. Höfuðstóll sjóðsins yrði því alls 35 miljónir króna. Bæjarráð og atvinnumálanefnd hafa þegar fjallað um samþykktir fyrir slíkan sjóð og endanleg drög ætti að liggja fyrir í maí mánuði. Stefnt er að því að atvinnu- og rannsóknarsjóður verði formlega stofnaður í janúar 2009 og fyrsta úthlutun verði vorið 2009.
Hjalti Þór Vignisson
25. apríl 2008.





Skrifa athugasemd