Fréttir
Jól í skókassa
Jól í skókassa
Grunnskóli Hornafjarðar, í Nesjaskóla (Úr myndasafni).

14.04.2008 Fréttir

Niðurstaða vinnustaðagreiningar Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Í desember 2007 var hafist handa við að greina vinnuumhverfi starfsmanna Sveitarfélagsins Hornafjarðar, samskipti á vinnustað, aðbúnað, möguleika til starfsþróunar, hollustu starfsmanna við vinnustaðinn og jafnréttismál. Greining sem þessi er forsenda að hægt sé að taka upp árangursstjórnun í starfsmannamálum í sveitarfélaginu og þannig að efla Sveitarfélagið Hornafjörð sem vinnuveitanda. Í desember og janúar var spurningalisti hannaður og bakgrunnsbreytur valdar. Haft var samráð við forstöðumenn og trúnaðarmenn í stofnunum sveitarfélagsins um gerð spurningalistans.

Í janúar var tilgangur spurningalistans og markmið kynnt fyrir stjórnendum. Jafnframt var tilkynning send til Persónuverndar um spurningakönnunina, skv. lögum um persónuvernd nr. 77/2000. Í febrúar var spurningalistinn sendur út til allra stofnana og svörun var góð. Jón Kristján Rögnvaldsson, félagsmálastjóri, og Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri, hafa haldið utan um vinnuna og séð um úrvinnslu á spurningakönnuninni.

Helstu niðurstöður eru þær að 87% starfsmanna sveitarfélagsins eru í heildina ánægðir í starfi hjá sveitarfélaginu. Einnig er jákvætt að samskipti starfsmanna og yfirmanna eru almennt góð og sama má segja um samskipti á milli starfsmanna. Könnunin leiðir í ljós að úrbóta er þörf í vinnuverndarmálum, jafnréttismál þurfa að komast framar á dagskrá í starfsmannamálum og sí- og endurmenntun starfsmanna þarf að taka fastari tökum. Athygli vekur að nokkur hluti svarenda, einkum þeir sem unnið hafa hjá sveitarfélaginu í 6 ? 10 ár, hugsar um að hætta í starfi. Leitast verður sérstaklega við að greina hvað valdi þessu viðhorfi og jafnframt leita lausna.

Niðurstöður vinnustaðagreiningar verða notaðar til að endurbæta starfsmannastefnu sveitarfélagsins. Á grunni þessarar greiningar verða sett skýrari markmið um hvernig Sveitarfélagið Hornafjörður getur bætt sig sem vinnuveitandi. Stefnt er að því að endurbætt starfsmannastefna liggi fyrir í ágúst nk. Sambærileg könnun og þessi sem nú liggur fyrir verður framkvæmd eftir tvö ár.

Vinnustaðagreining 11.apríl 2008 (pdf) 

 
Hornafjörður, 11. apríl
Hjalti Þór Vignisson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica