Fréttir
Knattspyrnuhus_mynd_0009
Knattspyrnuhus_mynd_0009
Knattspyrnuhus_mynd_0009
Mynd 1 af 3
1 2 3

18.03.2008 Fréttir

Kynning í Nýheimum á fyrirhuguðu knattspyrnuhúsi 19.– 28. mars.

Í undirbúningi er bygging knattspyrnuhúss á Hornafirði sem verður u.þ.b. 70 metrar að lengd, 50 metrar að breidd og 12 metrar að hæð. Knattspyrnuhúsið mun koma til með að bæta verulega æfingaraðstöðu fyrir knattspyrnu og fleiri íþróttagreinar. Auk þess léttir það álagi á núverandi íþróttahúsi og þannig skapast svigrúm fyrir aðrar íþróttagreinar að eflast enn frekar og e.t.v munu nýjar íþróttagreinar ryðja sér til rúms á Hornafirði í framtíðinni.
Knattspyrnuhúsið, sem fyrirhugað er að reisa á Höfn, á sér fyrirmynd úr Hafnarfirði. Íþróttafélagið FH reisti þar dúkhús sem veitir skjól yfir hálfan knattspyrnuvöll. Ennfremur eru Grindvíkingar að reisa sambærilegt hús.

Þegar kemur að eins viðamikilli framkvæmd og byggingu knattspyrnuhúss er að mörgu að hyggja. Hefja þarf skipulagsvinnu og er þessi kynning hluti af þeirri vinnu. Í framhaldinu verða mótaðar tillögur að breytingu á aðal- og deiliskipulagi.

Til skoðunar eru þrjár staðsetningar fyrir knattspyrnuhúsið. Þær eru við Áhaldahús, Gömlubúð og núverandi íþróttasvæði.

Breyting á aðalskipulagi nr.2 (PDF)

Breyting á aðalskipulagi nr.3 (PDF)

Kynning á knattspyrnuhúsi (PDF)

Video-kynningar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica