Fréttir
Jólatréð 2004
Jólatréð 2004
Jólatré (úr myndasafni)

30.11.2007 Fréttir

Kveikt á jólatré Hornafjarðar

Sunnudaginn 2. desember sem er fyrsti dagur í Aðventu verður kveikt á jólatré Hornafjarðar við hátíðlega athöfn kl. 17:00. Jólatréð verður komið fyrir við Sindrahúsið í miðbænum Við athöfnina leikur Lúðrasveit Hornfjarðar, Kvennakór Hornafjarðar og Leikskólabörn syngja jólalög. Flutt verður ávarp og hugvekja. Ungur Hornfirðingur mun tendrar jólaljósin að vanda. Tréð kemur úr Haukafelli á Mýrum. Það er víst mikill atgangur á fjöllum núna og hafa rjúpnaskyttur talið að þær hafi séð eitthvað rautt á fleygiferð langt í fjarska og heyrt mikinn hávaða. Er talið líklegt að Grýlu gamla sé að safna jólasveinunum saman og sauma á þá og gera við rauðu fötin þeirra til að búa þá undir árlegt ferðalag til byggða. Það er því ekki ólíklegt að þeir fyrstu kæmu til byggða á Hornafirði um svipað leiti og kveikt yrði á jólatrénu því gott sleða- og skautafæri væri á fjöllum og færðin góð.

Hornfirðingar eru hvattir til að fjölmenna við athöfnina.

Hæ,hæ og hóhó nú verður kátt í hverjum hól.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica