Fjárhagsáætlun 2008 fylgt úr hlaði
Á fundi bæjarstjórnar í gærkvöldi fylgdi bæjarstjóri fjárhagsáætlun 2008 úr hlaði og voru helstu niðurstöðutölur við fyrri umræðu þessar: A-hluti: Skatttekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar 1.039,7 m.kr. Rekstur málaflokka eru áætlaður 899,4 m.kr. Mismunur tekna og gjalda A-sjóðs sveitarfélagsins er því afgangur um 126,4 m.kr. Handbært fé frá rekstri 212,6 m.kr., fjárfestingar 550 m.kr., tekin ný langtímalán 200 m.kr., afborganir langtímalána 87,0 m.kr. og handbært fé í árslok 143,6 m.kr. B-hluti: Hornafjarðarhöfn: Gert er ráð fyrir að tekjur verði 84,9 m.kr. en rekstrargjöld 74,3 m.kr. Tekjur umfram gjöld verði því um 10.7 m.kr. Fjármagnsgjöld eru 9,2 m.kr. Tekjur umfram gjöld eru því um 1,4 m.kr. Handbært fé frá rekstri 13,3 m.kr., fjárfestingar 39,6 m.kr., tekin ný langtímalán 35 m.kr., afborganir langtímalána 7,4 m.kr. og handbært fé í árslok 2,6 m.kr.
Hornafjarðarveitur: Gert er ráð fyrir að tekjur verði 55,4 m.kr., rekstrargjöld 22,1 m.kr. fjármagnsgjöld eru 19,6 m.kr. Tekjur umfram gjöld verði um 13,7 m.kr. Handbært fé frá rekstri 27,6 m.kr. og fjárfestingar 16,5 m.kr.
Leiguíbúðir: Gert er ráð fyrir að tekjur verði um 23,7 m.kr. en rekstrargjöld um 18,4 m.kr. en nú er í fyrsta skipti gert ráð fyrir afskriftum fastafjármuna 7,5 m.kr. fjármagnsgjöld eru um 17,0 m.kr. gjöld umfram tekjur verði um 11,6 m.kr. Handbært fé frá rekstri 6,1 m.kr. og afborganir langtímalána 8,7 m.kr.
Eftirfarandi tillaga að álagningarreglum fyrir árið 2008 var samþykkt og vísað til seinni umræðu
| Útsvar | 13,03% |
| Fasteignaskattur | |
| íbúðarhúsnæði | 0,50% |
| opinberar byggingar | 1,32% |
| atvinnuhúsnæði | 1,62% |
| Lóðarleiga | |
| íbúðarlóðir (af lóðarmati) | 1,00% |
| iðnaðarlóðir (af lóðarmati) | 1,00% |
| aðrar lóðir (af lóðarmati) | 1,00% |
| Holræsagjald | 0,30% |
| Vatnsgjöld | 0,18% |
Sjá nánar Fjárhagsáætlun 2008 fyrri umræða (hér)





Skrifa athugasemd