Fréttir
Samningur um flokkun úrgangs undirritaður
Samningur um flokkun úrgangs undirritaður
Samningur um flokkun úrgangs undirritaður
Mynd 3 af 6
1 2 3 4 5 6

10.05.2007 Fréttir

Endurvinnsla hafin á Hornafirði, fyrstu skref.

Í gær 9. maí var skrifað undir samning um sorpflutning (endurvinnslu samningur) frá Hornafirði. Það er mjög ánægjulegt að þessu ferli er lokið en þetta mál hefur verið til umræðu innan sveitafélagsins um allnokkurn tíma. Nú geta Hornfirðingar verið fullvissir um að ákveðnir sorpflokkar sem skila sér á gámaportið fara ekki til urðunar í Lóni eins og verið hefur sem er mikið ánægjuefni. Þess bar að geta að við höfum verið að taka frá öll spilliefni sem eru meðhöndluð sérstaklega og brotajárn frá í þó nokkurn tíma, en nú bætist við bylgjupappi, sléttur pappi, dagblöð/tímarit, dekk og filmuplast sem hægt er að flytja burt. Heimilin geta einnig byrjað á moltugerð sem fram fer í heimahúsum þar er hægt að ná allt upp í 40% af almennu heimils sorpi úr urðun. Næstu skref er að finna farveg fyrir Heyrúlluplast sem er vel á veg komið, þar á eftir gler og timbur.

Það hefur farið geysilega mikil undirbúningsvinna fram og núverandi Umhverfisnefndar formaður Sigurlaug Gissurardóttir hefur verið drifkraftur í þessu máli og Umhverfisnefndin hefur stutt vel við bakið á henni. En eins og ég vil benda á þá er þetta mikilvægt skref í rétta átt, land er takmörkuð auðlind og hana ber að nýta vel og það er mjög kostnaðarsamt að finna nýjan urðunarstað. Innan sveitafélagsins er að byggjast upp öflug og fjölbreytt ferðaþjónusta þar sem aðdráttaraflið er umhverfið svo okkur ber að fara vel með landið okkar og minka urðun.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica