Fréttir
Garðúrgangur
Garðúrgangur
Aðstaðan við Fjárhúsavík
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

30.04.2007 Fréttir

Mikilvægt að henda réttum garðúrgangi á réttan stað

Víða má sjá fólk vinna í görðum sínum og greinilegt að "sumarfílingurinn" er kominn í fólk með græna fingur. Eitt af því sem kemur alltaf upp þegar farið er að vinna í garðinum er að það þarf að losa sig garðúrgang svo sem afklippur, greinar og gras. Umhverfis- og Tæknisvið hefur útbúið aðstöðu við gömlu ruslahaugana við Fjárhúsavík og þar er hægt að losa sig við greinar, afklippur og gras. Mikilvægt er að þegar grasi er hent að það sé ekki skilið eftir í plastpokum. Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs sveitarfélagsins segir að til standi að kurla greinar og því skipi miklu máli að fólk passi að ekki lendi neitt með greinunum sem gæti skemmt kurlvélina svo sem grjót, járn annað líkt efni.

Þeir sem þurfa að losa sig við grjót og mold geta farið með það á leirusvæðið því sá úrgangur nýtist sem landfylling þar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica