Fréttir
Göngubrúin yfir Morsa við Hrafnagil
Göngubrúin yfir Morsa við Hrafnagil
Göngubrúin yfir Mosá við Hrafnagil

21.02.2007 Fréttir

Umsögn Sveitarfélagsins Hornafjarðar um frumvarp til laga um Vatnajökulsþjóðgarð

Bæjarráð Hornafjarðar er fylgjandi stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs og styður frumvarp til laga um stofnun hans að því tilskyldu að aðkoma heimamanna að stjórn þjóðgarðsins sé tryggð. En bæjarráð telur að svo sé í framlögðu frumvarpi. Með samþykkt þessa frumvarps verður stigið skref sem ekki mun aðeins verða til hagsbóta fyrir þá sem búa í nágrenni þjóðgarðsins heldur einnig aðra Íslendinga og sannanlega mun áhrifanna gæta langt út fyrir landsteinana. Lögð er áhersla á að nægjanlegt fé fáist til uppbyggingar og reksturs þjóðgarðsins. Einnig leggur sveitarstjórn áherslu á að öryggismál á jöklinum fái ítarlega umfjöllun og þar með hver hefur lögsögu á jökli og aðkomu björgunarsveita.

Bæjarráð telur sérstaka ástæðu til að fjalla um eftirfarandi greinar frumvarpsins:

2. grein þar sem bæði er kveðið á um verndun svæðisins og þess mikilvæga þáttar að auðvelda almenningi aðgengi að þjóðgarðinum.
Að hafa greiðan aðgang að slíkri náttúruperlu við bæjardyrnar eykur ekki aðeins lífsgæði okkar sem hér búum heldur mun það laða að ferðamenn sem hafa mun margvísleg samfélagsleg áhrif á Íslandi.

3. grein - möguleikar á að friðlýsa land í einkaeign.
Það er mjög mikilvægt að vernda ákveðnar náttúruperlur og landslagsheildir við jaðar Vatnajökuls í Sveitarfélaginu Hornafirði. Það má þó ekki gera nema með samningi við einstaka landeigendur og einnig með því að leyfa samtímis hefðbundna nýtingu landsins ? innan skynsamlegra marka ? á umræddu svæði.
Nær öll svæði við jaðar þjóðgarðsins eru í einkaeign ef undan eru skildar hugsanlegar þjóðlendur. Það er okkar mat að áhugavert sé að vernda og byggja upp aðgengi að eftirtöldum stöðum: Lónsöræfum og Austurskógum í Stafafellsfjöllum, Umhverfi Hoffellsjökuls, svæðið frá Haukafelli á Mýrum og vestur fyrir Kolgrímu að og með Hjallanesi, Steinadal og umhverfi hans í Suðursveit og Skeiðarársand í heild sinni ? náist um það samningar við hlutaðeigandi.

4. grein - stjórn þjóðgarðsins.
Bæjarráð fagnar tillögum að stjórn þjóðgarðsins. Það er mjög mikilvægt að tryggja aðkomu heimamanna að stjórn hans. Heimamenn á hverjum stað hafa mesta þekkingu á því landsvæði sem fyrirhugað er að falli undir þjóðgarði og sú skipan stjórnar mun auka ábyrgð okkar og tilfinningu fyrir þeim verðmætum sem í þjóðgarðinum eru fólgin. Þá mun þátttaka heimamanna í stjórn væntanlega tryggja betur að ákvarðanir sem stjórnin kann að taka verði í sátt við heimamenn. Einnig er mikilvægt að heimamenn hafi möguleika á að fylgja eftir áherslum sínum um uppbyggingu og rekstur þjóðgarðsins við yfirvöld.

7. - 10. grein - rekstrarsvæði, svæðisráð og þjóðgarðsverðir.
Þar sem daglegur rekstur svæða er á ábyrgð viðkomandi þjóðgarðsvarða og svæðisráð hafa eingöngu ráðgefandi hlutverk, telur bæjarráð Hornafjarðar að mikilvæg reynsla muni fást um aðkomu heimamanna að þjóðgarðinum, þar til kemur að endurskoðun stjórn/fyrirkomulags eftir 5 ár.


12. og 13. grein - verndaráætlun.
Tekið er undir mikilvægi verndaráætlunar fyrir þjóðgarðinn. Bæjarráð telur að með aðkomu svæðisráðanna að verndaráætlun verði tryggt að sjónarmið heimamanna komist vel til skila.

15. grein - umferð um þjóðgarðinn.
Bæjarráð telur að akstur vélknúinna ökutækja skuli takmarkast við ákveðin svæði þannig að forðast megi sem mest árekstra þeirra er kjósa að ferðast fótgangandi og þeirra sem ferðast á vélknúnum ökutækjum um jökulinn og nágrenni hans. Um leið verður að tryggja að vaxandi ferðaþjónustu á Vatnajökli, þar sem notuð eru vélknúin ökutæki, verði ekki of þröngur stakkur sniðinn. Undanþága frá banni við umferð vélknúinna ökutækja verður þó ávallt að gilda við hugsanlegar björgunaraðgerðir á jöklinum og nágrenni hans. Sambærileg undanþága kann einnig að vera nauðsynleg við ferðir rannsókna- og vísindaleiðangra á jökli. Undanþágu fyrir slíka leiðangra ætti að vera hægt að sækja um til þjóðagarðsvarðar. Bent skal á að vegurinn upp á Skálafellsjökul er ein aðalleiðin inn á jökulinn og afar mikilvægur fyrir björgunarstarf en einnig fyrir ferðaþjónustu og rannsóknir á jökli.

16. grein - þjónustustöðvar.
Tekið er undir tillögur að staðsetningu þjónustu- og upplýsingamiðstöðva.

18. grein - eftirlit. - Heimilt er þjóðgarðsverði að loka þjóðgarðinum eða einstökum svæðum hans fyrirvaralaust ef ...-
Hér er þjóðgarðsvörðum fært mikið vald sem getur leitt til árekstra ef ekki er gætt meðalhófs við beitingu þessa ákvæðis. Slíkt ástand kann að skapast að þetta teljist nauðsynlegt en er um leið ákaflega vandmeðfarið vald.

20. grein - reglugerð fyrir Vatnajökulsþjóðgarð.
Bæjarráð telur mikilvægt að sveitarstjórnir hafi tækifæri til að koma með athugasemdir við drög að reglugerð fyrir þjóðgarðinn og tekur því undir þessa grein. Lögð er áhersla á að þar verði tekið tillit til umsagna sveitarstjórna eins og kostur er. Á það skal þó bent að ekki er víst að sveitarstjórnir allt í kringum jökulinn hafi allar sömu hagsmuna að gæta og því getur orðið töluverður munur á athugasemdum þeirra þegar upp er staðið.

24. grein - Bæjarráð telur mikilvægt að endurskoða stjórnfyrirkomulag þjóðgarðsins fyrir 1. janúar 2013 þegar ákveðin reynsla hefur fengist af rekstri hans.

Að lokum: Bæjarráð Hornafjarðar telur að stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs muni, auk þess að tryggja verndun umhverfisins betur fyrir komandi kynslóðir, hafa mikil áhrif á búsetuþróun og afkomu íbúanna bæði í þjóðgarðinum og jaðarsvæðum hans,ekki síst þar sem heimamenn hafa trygga aðkomu að stjórnun og rekstri hans. Íbúar Suðausturlands hafa orðið miklar væntingar til væntanlegs þjóðgarðs og sjá í honum mikla möguleika.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica